Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Ímynd

Mat á ímynd er fengið með þremur spurningum, t.d. hvort starfsfólk telji viðskiptavini hafa jákvæða afstöðu til stofnunarinnar. Mat Sameykisfélaga á ímynd sinnar stofnunar er heldur neikvæðara en þeirra sem standa utan Sameykis. Mat starfsfólks á ímynd er jákvæðast hjá sveitarfélögunum en neikvæðast hjá ríkisstofnunum. Elsti svarendahópurinn hefur jákvæðasta mynd af ímynd síns vinnustaðar af aldurshópunum. Af ólíkum starfsstéttum hefur sölu- og afgreiðslufólk jákvæðasta mynd af vinnustaðnum og starfsfólk lítilla stofnana hefur jákvæðari mynd af vinnustaðnum en starfsfólk stærri stofnana.

Mynd 15: Mat Sameykisfélaga - starfsfólks sveitarfélaga og fyrirtækja borgarinnar - á ímynd sinna vinnustaða (byggt á tæplega 1300 svörum). Meðaleinkunn tekur gildi frá 1 (lægst) til 5 (hæst).

Til samanburðar má svo sjá hér mat Sameykisfélaga hjá ríki og sjálfseignarstofnunum á ímynd sinnar stofnunar. Í fyrra var besta útkoma á ímyndarþættinum sem náðst hefur en lækkar lítið eitt í ár frá því í fyrra.

Mynd 16: Mat Sameykisfélaga – starfsfólk ríkis og sjálfseignarstofnana (byggt á tæplega 2300 svörum). Meðaleinkunn tekur gildi frá 1 (lægst)
til 5 (hæst).

Eftir neikvæða breytingu í fyrra á mati félagsmanna Sameykis sem starfa hjá borginni, sveitarfélögum og fyrirtækjum borgarinnar, hækkar mat á ímynd verulega og hefur hún aldrei mælst hærri.“

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)