Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Félagsfundir

Skráning á félagsfundi fyrir félagsmenn í öllum landsfjórðungum sem haldnir verða í febrúar og mars. Haldnir verða átta fundir 8., 9., 15. 16., 22. og 23. febrúar, 1. og 2. mars.



Halda áfram

Nú þegar vetri hallar og sól hækkar á lofti hefur verið ákveðið að heyra í félagsmönnum í öllum landsfjórðungum. Rætt verður um fernt og byrjað á styttingu vinnuvikunnar – hvernig er reynslan og hver er staðan? Næst er svo áhrif covid / heimavinnan þar sem stiklað verður yfir skýrslu Ráðhússins og spáð í áherslur fyrir kjarasamninga 2023 í ljósi reynslunnar af covid. Í þriðja lagi verður fjallað um árásir á ríkistarfsmenn og endað á umræðu um jöfnun launa milli markaða.

Áætlaður fundartími er klukkustund og fer fundurinn fram á netfundarforminu Teams. Hér fyrir neðan velur þú fund eftir því hvar á landinu þú býrð og skráir þig. Daginn fyrir fund sendum við fundarboð með tengli. 

Hlökkum til að sjá þig.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)