1. maí 2025
Sameinuð höfum við slagkraft

Kári Sigurðsson, formaður Sameykis. Ljósmynd/BIG
„Á tímum sem þessum, þegar öfl í samfélaginu vinna markvisst að því að grafa undan verkalýðshreyfingunni og hlutverki hennar, er það skylda okkar – sem stórs og öflugs félags – að berjast gegn niðurrifstali til opinberra starfsmanna og standa vörð um réttindi félagsfólks.“
Sameyki er þriðja stærsta stéttarfélag landsins – staðreynd sem hvorki almenningur né stjórnvöld virðast gera sér fulla grein fyrir. En hvað með okkur sjálf? Veit félagsfólkið okkar fyrir hvað Sameyki stendur og hvers vegna stærð félagsins skiptir máli? Erum við sem félag meðvituð um þann styrk sem þessi staða gefur okkur og ekki síður, ábyrgðina sem henni fylgir?
Á tímum sem þessum, þegar öfl í samfélaginu vinna markvisst að því að grafa undan verkalýðshreyfingunni og hlutverki hennar, er það skylda okkar – sem stórs og öflugs félags – að berjast gegn niðurrifstali til opinberra starfsmanna og standa vörð um réttindi félagsfólks. Með því verjum við reyndar réttindi alls launafólks í landinu og Sameyki er því með réttu stéttarfélag í almannaþágu.
Það er áhyggjuefni að á síðustu misserum hafa komið fram tillögur sem vega að réttindum opinberra starfsmanna – réttindum sem unnist hafa í harðri baráttu undanfarinna áratuga. Hefur snjóað yfir þá staðreynd að þessir starfsmenn gegna lykilhlutverki í aðhaldi og eftirliti með yfirmönnum sínum? Er eðlilegt að starfsfólki sem skilur hlutverk sitt og ber ábyrgð geti jafnvel verið vikið úr starfi fyrir að standa vörð um fagmennsku og réttsýni? Hvers konar samfélag leyfir að starfsfólk sé látið fara fyrir það eitt að vinna vinnuna sína af heilindum? Slíkt er ekki aðeins árás á viðkomandi heldur árás á heilbrigða stjórnsýslu og lýðræðisleg vinnubrögð.
Tími til að þétta raðirnar
Senn líður að 1. maí – degi sem er ekki aðeins táknrænn í huga verkalýðshreyfingarinnar, heldur áminning um það sem við höfum áunnið og það sem við eigum enn eftir að ná fram. Í þessu samhengi er því líka mikilvægt að minna á Kvennaárið, en 1.maí verður lögð mikil áhersla á þessi málefni. Í ár er brýnt að við minnum á okkur og sýnum hvers megnug við erum.
Við þurfum að virkja raddir alls félagsfólks, fræða um réttindi og kjör og sameina krafta allra stéttarfélaga í landinu. Þetta er tíminn til að snúa vörn í sókn. Við hvetjum því allt launafólk til að fjölmenna í 1. maí kröfugöngu og sýna með því samstöðu. Þegar við stöndum saman náum við þeim slagkrafti sem þarf til að knýja fram raunverulegar breytingar.
Trúnaðarmenn í lykilhlutverki
Trúnaðarmannaráð Sameykis kemur saman 15. maí og er það lokafundur þessa trúnaðarmannaráðs. Í maí komandi mun félagsfólk á hverjum vinnustað kjósa trúnaðarmenn fyrir Sameyki til næstu tveggja ára. Trúnaðarmenn eru burðarstoð félagsins – tengiliðir, talsmenn og verndarar réttinda á vinnustöðum landsins.
Við ætlum að styðja trúnaðarmenn í störfum þeirra til þess að þeir geti gegnt sínu mikilvæga hlutverki með festu og af fagmennsku – nú og til framtíðar. Á fundinum verða jafnframt kynnt drög að starfsreglum stjórnar Sameykis sem byggja á ákvörðunum síðasta aðalfundar og fela í sér markviss skref til að auka gagnsæi, skilvirkni og traust innan félagsins.
Leiðragreinin birtist fyrst í Tímariti Sameykis, 2. tbl. 2025.