6. febrúar 2013
Ályktun frá stjórn Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa í lok janúar: "Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa lýsir eindregnum stuðningi við baráttu hjúkrunarfræðinga fyrir bættum kjörum á Landspítalanum. Það er löngu tímabært að þessi mikilvæga stétt, einn helsti burðarásinn í sjálfu heilbrigðiskerfi þjóðarinnar, fái uppreisn launa og bót kjara sinna. Við skorum á heilbrigðisráðherra og Landspítala að ganga að kröfum hjúkrunarfræðinga til að forða því að illa fari. Fyrir utan mikinn eril og mikla ábyrgð í starfi, vinna hjúkrunarfræðingar gjarnan vaktavinnu, sem fellur almennt illa að fjölskyldulífi og tekur því sinn toll af fleiru en launaumslaginu. FRS vill nota tækifærið til að minna á að fleiri stéttir í heilbrigðis- og velferðarkerfinu eiga heimtingu á kjarabótum, ekki síst stuðningsfulltrúarnir og annað vaktavinnufólk."
Stjórn Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa