14. febrúar 2013
Stofnun ársins - könnunin farin af stað
Okkar árlega könnun Stofnun ársins og launin þín er að fara af stað þessa dagana. Félagsmenn munu almennt fá könnunina senda í tölvupósti. Það verður hringt í þá sem ekki hafa netföng og falast eftir þátttöku þeirra og þeir sem þess óska munu fá könnunina senda í pósti.
SFR hvetur alla félagsmenn til að taka þátt í könnuninni en við höfum verið stolt af góðri þátttöku undanfarin ár sem skapað hefur grunn að áreiðanlegum niðurstöðum. Þeir sem svara könnuninni verða sjálfkrafa með í happdrætti þar sem 6 vinningar eru í boði, tvö gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 60 þúsund krónur, tveir aðgöngumiðar að Iceland Airwaves hátíðinni 2013 og 2x helgardvöl í orlofshúsi SFR að eigin vali utan úthlutunartíma