Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. febrúar 2013

Stofnun ársins - könnunin farin af stað

stofnun-arsinsOkkar árlega könnun Stofnun ársins og launin þín er að fara af stað þessa dagana. Félagsmenn munu almennt fá könnunina senda í tölvupósti. Það verður hringt í þá sem  ekki hafa netföng og falast eftir þátttöku þeirra og þeir sem þess óska munu fá könnunina senda í pósti. 

SFR hvetur alla félagsmenn til að taka þátt í könnuninni en við höfum verið stolt af góðri þátttöku undanfarin ár sem skapað hefur grunn að áreiðanlegum niðurstöðum. Þeir sem svara könnuninni verða sjálfkrafa með í happdrætti þar sem 6 vinningar eru í boði, tvö gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 60 þúsund krónur, tveir aðgöngumiðar að Iceland Airwaves hátíðinni 2013 og 2x helgardvöl í orlofshúsi SFR að eigin vali utan úthlutunartíma.

Margir félagsmenn hafa þegar fengið könnunina senda en kannski ekki alllir. Ástæða þess er sú að könnunin er send út í "slumpum" þ.e. könnunin er ekki send til allra samtímis. 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)