5. mars 2013
Starfsþróun - Hvað getum við gert fyrir þína stofnun?
Starfsmennt býður opinberum stofnunum upp á þjónustu náms- og starfsráðgjafa fyrir starfsfólk sitt. Náms- og starfsráðgjöfinni er ætlað að styðja við símenntunaráætlun einstaklinga og ræða möguleika á frekari starfsþróun.
Ráðgjöfinni er ætlað að auðvelda fólki, á hvaða aldri sem er og við hvaða aðstæður sem er, að átta sig á styrkleikum sínum, færni og áhuga til að eiga hægara með að ákveða stefnu í námi og starfi.
- Smelltu hér til að kynna þér betur náms- og starfsráðgjöf Starfsmenntar.
- Smelltu hér til að kynna þér aðra mannauðsþjónustu sem stofnanir geta nýtt sér.
Hér í marsfréttabréfi Starfsmenntar má sjá nokkur þeirra námskeiða sem boðið er upp á auk þeirrar þjónustu sem Starfsmennt býður opinberum stofnunum.
Að venju er allt nám félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu og í flestum tilfellum opið öðrum gegn gjaldi.