13. mars 2013
Svarfrestur framlengdur - taktu þátt!
Þeir sem enn eiga eftir að svara launakönnun SFR og könnuninni um Stofnun ársins geta nú drifið sig í það, því svarfresturinn hefur verið framlengdur til 22. mars. Könnunin var send rafrænt til félagsmanna með gild netföng og nú er verið að hringja til þeirra sem ekki náðist í. Ef einhver hefur hvorki fengið tölvupóst né símtal má hann gjarnan hafa samband við skrifstofuna í síma 5258340 (gudrun@sfr.is) eða beint til Capacent (tomas.bjarnason@capacent.is).
Það er afar áríðandi fyrir félagið að þið kæru félagsmenn takið ykkur nokkrar mínútur til að svara könnuninni. Með niðurstöðum hennar fæst afar mikilvægur samanburður milli ára sem nýtist okkur öllum í kjarabaráttunni.