15. mars 2013
Mínar síður
Nýjung í þjónustu við félagsmenn SFR var kynnt á aðalfundi félagsins í gær. Þar eru á ferðinni svokallaðar MÍNAR SÍÐUR þar sem félagsmönnum er veittur læstur aðgangur að persónulegu svæði á vef félagsins. Þar geta félagsmenn nálgast upplýsingar um styrki, umsóknir og fræðslu sem þeir hafa sótt sér hjá SFR, auk þess sem þar er beinn aðgangur inn í Orlofsvefinn.
Við hvetjum alla til þess að prófa síðurnar sem fyrst (guli hnappurinn efst til vinstri). Á innskráningarsíðunni eru leiðbeiningar, en einnig er hægt að hafa við skrifstofu félagsins til að fá aðgang.