Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

15. mars 2013

SFR krefst stöðugleika

Fjölmennur aðalfundur SFR sem haldinn var í gær samþykkti meðal annars harðorða ályktun um kjaramál. Þar ítrekar SFR kröfur sína um að stjórnvöld setji tafarlaust fram raunhæfar tillögur um að tryggja stöðugleika í íslensku efnahagslífi og þess er auk þess krafist að farið verði í vinnu sem miðar af því að stytta vinnuvikuna í 36 stundir.

 

Ályktun aðalfundar SFR um kjaramál

Aðalfundur SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu krefst þess að kjör starfsmanna innan almannaþjónustunnar verði bætt. Starfsmenn innan hins opinbera hafa á síðast liðnum árum búið við aukið álag, og skerðingu á kjörum. Standa þarf vörð um þá verðmætasköpun sem á sér stað. Tryggja þarf samkeppnishæfi starfa á opinberum markaði til þess að gæði þjónustunnar verði ekki rýrð enda ein af grunnstoðum íslensks samfélags.

Aðalfundur SFR krefst þess, að lögfest verði að, vinnuvika vaktavinnufólks verði ekki lengri en 80% af vinnuviku dagvinnufólks. Þá krefst aðalfundur SFR þess að vinna sem miðar að skilgreiningu vinnu- og vinnuaðstöðu vaktavinnufólks verði kláruð. Rannsóknir á sviði lýðheilsu hafa fyrir löngu sýnt fram á slæm heilsufarsleg áhrif vaktavinnu.

 SFR krefst þess að farið verði í vinnu sem miðar af því að stytta vinnuvikuna í 36 stundir.

SFR ítrekar kröfur sína um að stjórnvöld setji tafarlaust fram raunhæfar tillögur um að tryggja stöðugleika í íslensku efnahagslífi.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)