19. mars 2013
Skuldbindingar ríkissjóðs við lífeyrissjóð opinberra starfsmanna
Ríkissjóður hefur enn ekki hafið niðurgreiðslu á skuldbindingum sínum við lífeyrissjóð opinberra starfsmanna þrátt fyrir ítrekaðar kröfur SFR þar um. Aðalfundur SFR sem haldinn var í síðustu viku ítrekar kröfur félagsins og krefst þess að ríkissjóður hefji nú þegar að greiða inn á skuldbindingar sínar við lífeyrissjóð opinberra starfsmanna. Þá er þess krafist að heildarendurskoðun á lífeyriskerfi landsmanna lýkur er nauðsynlegt að fyrir liggi hvernig hið opinbera hyggst standa við skuldbindingar sínar gagnvart opinberum starfsmönnum.
Ályktun aðalfundar SFR um lífeyrismál
Aðalfundur SFR – stéttarfélags í almannþjónustu krefst þess að ríkissjóður hefji nú þegar að greiða inn á skuldbindingar sínar við lífeyrissjóð opinberra starfsmanna. Gera skal áætlun um hvernig standa skuli að greiðslum til frambúðar. Fundurinn minnir á að núverandi iðgjaldagreiðslur í A- deild LSR duga ekki fyrir þeim réttindum sem deildin er skuldbundin til að greiða. Aðalfundur krefst þess að ríkisstjórnin hækki nú þegar framlag til A-deildar LSR eins og lög gera ráð fyrir og geri nú þegar greiðsluáætlunum um hvernig hún ætlar að standa við langtímaskuldbindingar sínar gagnvart B – deild LSR.
Áður en heildarendurskoðun á lífeyriskerfi landsmanna lýkur er nauðsynlegt að fyrir liggi hvernig hið opinbera hyggst standa við skuldbindingar sínar gagnvart opinberum starfsmönnum.
Aðalfundur SFR fagnar þeim drögum að nýskipan í tengslum við tekjutengingu bóta og lífeyrisgreiðslna sem fram koma í lögum um almannatryggingar. Fundurinn bendir þó á að þetta er einungis fyrsta skref í átt að viðunandi stöðu hvað samspil lífeyris- og almannatrygginga varðar.