8. apríl 2013
Dagleiguhús - opnað fyrir bókanir 15. apríl kl. 9
Opnað verður fyrir bókanir í dagleiguhús í sumar 15. apríl kl. 9. Um er að ræða íbúðirnar í Reykjavík og á Akureyri, Stykkishólmi og Vestmannaeyjum, ásamt orlofshúsi í Vaðnesi og á Eiðum.
Dagleiguhús er hægt að leigja með stuttum fyrirvara. Þar gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Hægt er að leigja húsin frá einum degi upp í viku.
Verðskrá:
- 1.gistinótt 8.000 kr.
- 2.gistinótt 8.000 kr.
- 3.-7.gistinótt 4.000 kr.