30. apríl 2013
1. maí er dagur launafólks
„Ég er almennt á móti því þegar hinir og þessir reyna að eigna sér þennan dag. Menn eru að setja upp alls konar íþróttamót og hitt og þetta sem hefur farið í taugarnar á mér í gegnum árin,“ segir Árni Stefán Jónsson, formaður SFR í Fréttablaðinu í morgun og vísar þar m.a. til hinnar svokölluðu Grænu göngu sem skipulögð hefur verið á morgun.
Það hefur færst í aukana að íþrótta-. stjórnmálafélög og fleiri skipuleggi dagskrá þennan dag, sem er afar bagalegt því launafólk þarf á allri sinni samstöðu að halda til að sýna í kröfugöngum um land allt. 1. maí göngur hafa verið skipulagðar á Íslandi í 90 ár og því ættu þær ekki að koma skipuleggjendum annarra viðburða á óvart.
SFR hvetur félaga sína og fjölskyldur þeirra til að fjölmenna í kröfugöngur 1. maí sem haldnar eru um land allt. Hér á síðunni undir liðnum á döfinni má sjá dagskrá göngunnar í Reykjavík og á Akureyri.