2. maí 2013
1. maí í Reykjavík
Það var fjölmennt í baráttugöngu launafólks þann 1. maí og mikil stemmning bæði í göngunni og á útifundinum á Ingólfstorgi. Þar fluttu þau Ólafía Björk Rafnsdóttir formaður VR og Snorri Magnússon formaður Landssambands lögreglumanna ræður. Kvennakór Reykjavíkur og Barnakór Kársness sungu og Jónas Sig sló í gegn með blásurunum sínum.
Í göngunni var rauði litur SFR var skemmtilega áberandi eins og sjá má á myndunum. Á Laugarveginum mátti heyra örræður en stjórnarkonurnar Olga Gunnarsdóttir, Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Védís Guðjónsdóttir varaformaður SFR voru meðal örræðumanna. Eftir gönguna fjölmennti hópur fólks í kaffi í BSRB húsinu en þar þáðu rúmlega 900 manns veitingar. SFR þakkar félagsmönnum sínum fyrir góða baráttu og frábæran dag.