14. maí 2013
Rangt símanúmer á bréfi með félagsskírteini!
Því miður misritaðist símanúmer SFR á bréf sem fylgir félagsskírteininu sem er að koma til félagsmanna núna. Rétt símanúmer hjá SFR er 525-8340 en ekki 585-8340 sem er hjá Póstmiðstöðinni. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Félagsskírteinið þarf að hafa til að fá afslætti sem félagsmönnum bjóðast. Neðst á heimasíðu SFR má sjá hnapp sem á stendur AFSLÁTTARKJÖR FYRIR FÉLAGSMENN en þar eru allar upplýsingar um þær verslanir sem veitaf afslátt.
Athugið að nú stendur yfir söfnun afslátta fyrir næsta afsláttartímabil svo búast má við viðbótum og einhverjum breytingum á afsláttarkjörum um og eftir 1. júní næstkomandi, en skírteinin taka gildi strax og hægt er að nota þau til að nýta þá afslætti sem nú eru í boði.