20. júní 2013
Ísland til eftirbreytni
Á vef Virk starfsendurhæfingar má lesa að á yfirstandandi þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) var framkvæmd Íslands á alþjóðasamþykkt um starfsendurhæfingu og atvinnumál fatlaðra valin til umfjöllunar sem dæmi um framkvæmd samþykktar sem gæti orðið öðrum ríkjum til eftirbreytni á yfirstandandi þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO).
Það sem helst þykir gott á Íslandi eru ákvæði í lögum um málefni fatlaðra sem fjalla um atvinnumál og réttindavernd fatlaðra. Einnig er horft til laga nr. 60/2012 um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, og þá sérstaklega til aðdraganda lagasetningarinnar og samstarfsins sem var milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins við undirbúning löggjafarinnar. Lög nr. 60/2012 ná yfir starfsemi VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs. Samið var um stofnun og starfsemi VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs í kjarasamningum á árinu 2008.
.Um þetta má lesa nánar á vef velferðarráðuneytisins og á vef Virk starfsendurhæfingar.