Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

28. júní 2013

Opnað fyrir sumarhús til október

bustadur_kjarnaskogurMánudaginn 1. júlí kl. níu verður opnað fyrir bókanir í október í orofshús félagsins innanlands og hús erlendis út nóvembermánuð þ.e. til 29. nóv. 

Helgarleiga í húsum SFR í vetur verður 16.000 kr og hver aukadagur 3.000 kr. nema í Vestmannaeyjum og Hólasetri þar er helgaleigan sama en hver aukadagur kostar þar 4.000 kr.  Vika í íbúðinni í Kaupmannahöfn kostar 86.000 kr. í vetur. Hægt er að velja sér daga nema það er ekki hægt að bóka sig inn eða út á laugardegi.

Fyrstu tveir dagarnir í Kaupmannahöfn kosta 46.000 kr. hver aukadagur eftir það er á 8.000 kr. Ekki er um endurgreiðslu að ræða ef hætt er við nema íbúðin leigjist aftur út. Spánn verður eins og áður 44.000 kr. vikan nema húseigandi breyti því. SFR er með húsin á Spáni í umboðsleigu þ.e. við eigum þau ekki og því gilda þar almennt aðrar reglur. Ef hætt er við leigu að einhverjum ástæðum þá er ekki um endurgreiðslu að ræða.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)