12. ágúst 2013
Afslöppun fyrir haustið
Orlofshús félagsins hafa verð afar vel nýtt í allt sumar en nú þegar líður á ágúst má orðið finna eitthvað laust. Orlofshúsið á Hólum í Hjaltadal er til dæmis laust vikuna 16.-23. ágúst og vikuna þar á eftir má finna laus hús í Vaðnesi, á Eiðum, Blönduósi og í Munaðarnesi. Við hvetjum félagsmenn til að kíkja orlofsvefinn og bóka afslöppun í orlofshúsi áður en haustið svífur að.