15. ágúst 2013
Viltu verða að liði? Raunfærnimat félagsliða
Viltu verða félagsliði og fá starfsreynslu, fyrra nám og vel leyst lífsverkefni metin til framhaldsskólaeininga? Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á raunfærnimat sem metur starfshæfni þína og auðveldar þér að ljúka námi sem félagsliði.
Til að komast í raunfærnimatið þarft þú að:
- vera 25 ára eða eldri,
- hafa starfað í 3 ár eða lengur með fötluðu fólki, öldruðum eða sjúkum,
- hafa lokið a.m.k. 240 stundum í starfstengdu námi.
Starf félagsliða felst í því að efla og styðja við sjálfstæða félagslega virkni einstaklinga sem njóta þjónustu á heilbrigðis-, félags- eða menntunarsviði. Félagsliðabraut er alls 81 eining en þátttaka í raunfærnimati metur starfsreynslu og starfshæfni til eininga og greiðir leið fullorðinna í námið.
Áhugasamir fá allar nánari upplýsingar hjá Starfsmennt í síma 550 0060 en farið verður af stað þegar tilskilinn fjöldi hefur skráð sig í raunfærnimatið.