9. september 2013
BSRB ályktar um ríkisfjármál
Á heimasíðu BSRB segir frá ályktun stjórnar BSRB um ríkisfjármál sem samþykkt var á fundi bandalagsins sem haldinn var á Egilsstöðum fyrir helgina. Í ályktuninni er m.a. brýnt fyrir stjórnvöldum að frekari aðhaldsaðgerðir hjá hinu opinbera muni hafa mjög neikvæðar afleiðingar í för með sér og vinna gegn markmiðum stjórnvalda um að ná fram jöfnuði í ríkisrekstrinum.
Einnig segir í ályktuninni að komi til þess að ríkisstjórnin auki enn á á byrðar almennings til að mæta tekjumissi muni það magna vandann sem ríkissjóður standi frammi fyrir, valda auknu atvinnuleysi og skila þeim sem mest þurfa á hjálp að halda lakari þjónustu.
Ályktun stjórnar BSRB um ríkisfjármál
Stjórn BSRB brýnir fyrir ríkisstjórninni að frekari aðhaldsaðgerðir hjá hinu opinbera muni hafa mjög neikvæðar afleiðingar í för með sér og vinna gegn markmiðum stjórnvalda um að ná fram jöfnuði í ríkisrekstrinum.
Aðgerðir nýrrar ríkisstjórnar fram til þessa hafa aukið mjög á halla ríkissjóðs. Furðulegt hefur verið að sjá ríkisstjórnina hafna milljarða tekjustofnum á sama tíma og hún lýsir yfir þungum áhyggjum af bágri stöðu ríkisfjármálanna. Ljóst þykir að aðhald þurfi að sýna á öðrum sviðum til að mæta þessu tekjutapi og hefur sérstakur hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar leynt og ljóst lagt á ráðin um hvernig það skuli gert.
Það er ekki verjandi fyrir ríkisstjórn sem var kosin til valda út á loforð um aðgerðir í þágu heimilanna að ætla að mæta tekjutapi ríkissjóðs vegna eftirgjafa til hinna efnamestu með frekari niðurskurði til mennta-, heilbrigðis-, löggæslu- og velferðarmála. Frá efnahagshruni hefur almennt launafólk – þrátt fyrir verri vinnuaðstæður, aukið álag og skertan kaupmátt – lagt á sig ómælt erfiði til að halda úti velferðarþjónustu fyrir sívaxandi fjölda fólks sem á þjónustunni þarf að halda.
Ríkisstjórnin hefur lítið gefið uppi um hvernig hún hyggst endurskipuleggja ríkisfjármálin. Stjórn BSRB óttast að það verði gert með því að auka enn á byrðar almennings á Íslandi sem létt hefur verið af þeim sem mest hafa. Slíkar aðgerðir munu aðeins magna vandann, valda auknu atvinnuleysi og skila þeim sem mest þurfa á hjálp að halda lakari þjónustu með skelfilegum afleiðingum fyrir þjóðina alla til lengri og skemmri tíma litið.
Stjórn BSRB varar eindregið við frekari niðurskurði á opinberri þjónustu og ítrekar að eitt af helstu stefnumálum bandalagsins er að standa vörð um almannaþjónustuna. BSRB mun áfram fylgjast vel með framvindu ríkisfjármálanna og bregðast við ef þörf krefur.