Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

11. september 2013

Hreyfitorg; formleg opnun og málþing 13. september

HREYFITORG_300X300Á vef VIRK kemur fram að gagnvirki vefurinn Hreyfitorg verður opnaður með formlegum hætti fös.13. sept. kl. 14. Í tilefni opnunarinnar verður á sama tíma haldið málþingið Þjálfun almennings - ábyrg þjónusta, upplýst val.

Meginmarkmið Hreyfitorgs er að auðvelda þeim sem leita eftir þjónustu fyrir sig eða aðra, t.d. foreldrum og ýmsu fagfólki, að finna hreyfingu sem samræmist getu og áhuga hverju sinni og stuðlar að heilbrigði og vellíðan. Hreyfitorg er þannig m.a. ætlað að styðja við uppbyggingu kerfis um ávísun á hreyfingu (Hreyfiseðils).

Þátttaka í opnuninni og málþinginu er án endurgjalds en skrá þarf þátttöku. Nánari upplýsingar um dagskrá og skráning eru á heimasíðu Embættis landlæknis.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)