19. september 2013
Kröfugerð SFR birt
Trúnaðarmannaráð SFR samþykkti kröfugerð félagsins á fundi sínum í gær og verður hún kynnt viðsemjendur á næstunni. Í kröfugerðinni kemur m.a. fram að gert er ráð fyrir því að samið verði til skamms tíma að þessu sinni. Enda ríkir mikil óvissa um þróun efnahagsmála og aðgerðir stjórnavalda í ríkisfjármálum.
Meginmarkmið kröfugerðarinnar eru eftirfarandi;
- Að auka kaupmátt launa og verja hann.
- Að samið verði um sérstakan jafnlaunapott til að draga úr kynbundnum launamuni.
- Að laun verði sambærileg við það sem gerist á almennum vinnumarkaði.
- Að launatafla SFR verði endurnýjuð.
- Að aðferðafræði við gerð stofnanasamningar verði endurskoðuð.
- Stytta vinnuviku vaktavinnufólks.