23. september 2013
Nýtt félagsráð kosið á fundi trúnaðarmanna
Á fundi trúnaðarmannaráðs SFR þann 18. september sl. voru kosnir fulltrúar í félagsráð en í því sitja stjórn félagsins, formenn fagfélaga/deilda og stéttarfélaga og 15 fulltrúar sem kosnir eru af trúnaðarmannaráði á fyrsta trúnaðarmannaráðsfundi að hausti eftir trúnaðarmannakosningu.
Félagsráð skal meðal annars vinna að stefnumótun fyrir félagið í samráði við stjórn og annast undirbúning fyrir aðalfund félagsins, þar á meðal að kjósa uppstillinganefnd og laganefnd þegar það á við. Á fundum félagsráðs skal gerð grein fyrir fjárhagsstöðu sjóða félagsins og lögð fram skýrsla yfir starfsemina. Sjá nánar um hlutverk þess hér.
Við kosningu fulltrúa í félagsráð skal tryggt að lágmarki sé einn fulltrúi frá eftirtöldum landshlutum: Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi Vestra, Norðurlandi Eystra, Austurlandi, Suðurlandi og Reykjanesi. Það var því kosið um 8 fulltrúa, þar sem ekki bárust fleiri en eitt framboð í hverjum landshluta. Þrettán buðu sig fram og voru 81 sem greiddu atkvæði, þar af voru auð og ógild 2 atkvæði.
Eftir kosningu þá er félagsráð skipað eftirfarandi fulltrúum til næstu tveggja ára:
Anna Karen Kristjánsdóttir Sýslumaðurinn á Ísafirði – Vestfirðir
Anna Pálína Jónsdóttir Skógrækt ríkisins – Egilsstöðum - Austurland
Arnbjörg Gunnlaugsdóttir Háskóli Íslands
Augustin Dufatanye Reykjavíkurborg
Árni Stefán Jónsson formaður SFR og formaður Félagsráðs
Bryndís Theódórsdóttir stjórn SFR, Vinnumálastofnun
Elín Helga Jóhannesd. Sanko formaður Félags íslenskra læknaritara
Embla Valberg Þjóðskjalasafn Íslands
Guðjón Bjarki Sverrisson formaður Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa
Guðríður Guðbjartsdóttir formaður Félags heilbrigðisritara
Hildur Kristín Ásmundsdóttir stjórn SFR, Isavia
Hjalti Björnsson formaður Félags áfengis- og vímuefnaráðgjafa
Hrafnhildur Hauksdóttir Ríkisskattstjóri
Ingibjörg Óskarsdóttir Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Jóhanna S. Vilhjálmsdóttir stjórn SFR, Fiskistofa
Jóhanna Sóley Gunnarsdóttir stjórn SFR, Landspítali
Kristrún B. Jónsdóttir formaður Lífeyrisdeildar SFR
Lárus S. Ingibergsson Landbúnaðarháskóli Íslands - Vesturland
Magnea Bjarnadóttir Ríkisskattstjóri – Hellu - Suðurland
Olga Gunnarsdóttir stjórn SFR, Skógarbær
Ólafur Hallgrímsson stjórn SFR, Listaháskóli Íslands
Óskar Þór Vilhjálmsson stjórn SFR, Háskólinn á Akureyri
Salóme Berglind Guðmundsdóttir stjórn SFR, Fangelsismálastofnun ríkisins
Salvör Sigríður Jónsdóttir formaður Félags íslenskra félagsliða
Sigríður Björg Gísladóttir Íbúðalánasjóður – Sauðárkrókur – Norðurland Vestra
Sigríður Rut Sigurðardóttir Háskóli Íslands
Sigurður Guðmundsson formaður Fangavarðafélags Íslands
Sigurður H. Helgason stjórn SFR, Tilraunastöð Háskólans að Keldum
Sigurður Rafn Jóhannsson Vegagerðin
Sigurður Skúlason Skógrækt ríkisins – Akureyri - Norðurland Eystra
Védís Guðjónsdóttir varaformaður SFR, Landbúnaðarháskóli Íslands
Viðar Ernir Axelsson Landhelgisgæsla Íslands – Reykjanes
Þórey Einarsdóttir Sjálfsbjargarheimilið