26. september 2013
Orlofshús um helgina
Undanfarnar vikur hefur verið afar góð nýting á orlofshúsum SFR, enda er fátt notalegra en að njóta haustsins í helgarferð með fjölskyldu og vinum í orlofshúsi. Um helgina eru laus hús í Öndverðarnesi, Munaðarnesi og á Eiðum. Áhugasamir kíki inn á orlofsvefinn.