Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

10. október 2013

Trúnaðarmannaráð ályktar

truno9okt2Fjölmennur fundur trúnaðarmanna var haldinn í gær. Þar kynnti Tómas Bjarnason frá Capacent m.a. niðurstöður launakönnunar, Kristinn Bjarnason hagfræðingur BSRB rakti innihald fjárlagafrumvarpsins og Árni Stefán Jónsson fór yfir stöðu mála í undirbúningi kjarasamningsviðræðnanna.

Þá kynnti Jóhanna Þórdórsdóttir fræðslustjóri einnig Mínar síður fyrir trúnaðarmönnum. Mikil og góð stemmning var á fundinum og góðar umræður. Mikil ánæga var að sjá hversu margir nýir trúnaðarmenn mættu og varla er annað hægt en að hlakka til starfsins með þessum góða hópi í vetur.

 

Á fundi sínum ályktaði trúnaðarmannaráð meðal annars um heilbrigðismál. Í ályktuninni segir að;

Trúnaðarmannaráð SFR mótmælir þeim áherslum harðlega sem fram koma í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar þar sem forgangsraðað er í þágu auðmanna. Ábyrgðarleysi ríkisstjórnar sem afneitar tekjustofnum á borð við veiðileyfagjald og auðlegðarskatt upp á tugi milljarða er algjört þar sem almenningur og sjúklingar eru krafðir um mismuninn. Með þessum aðgerðum væri höggvið stórt skarð í grunnstoðir velferðarþjónustunnar með síhækkandi komugjöldum og nú síðast gistináttagjaldi fyrir þá sem leggjast inn á spítala.

SFR mótmælir harðlega og varar stjórnvöld við því að sérstakt gjald verði tekið af sjúklingum sem þurfa að leggjast inn á sjúkrahús. Þar er um að ræða algjöra kerfisbreytingu sem ógnar íslensku velferðarkerfi eins og við þekkjum það. Reyndin er sú að slík gjöld hafa tilhneigingu til að aukast. Þannig hefur kostnaður göngudeildarsjúklinga aukist og það mun einnig gerast hjá legusjúklingum. Smátt og smátt verður það aðeins á færi þeirra efnameiri að nýta sér heilbrigðisþjónustuna. Þetta eru ekki þær áherslur í heilbrigðiskerfinu sem við viljum sjá.

truno94

 

truno9okt3

Truno9okt

truno9okt1

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)