16. október 2013
Raunfærnimat fyrir þá sem langar að fara í félagsliðanám
Viltu verða félagsliði og fá starfsreynslu, fyrra nám og vel leyst lífsverkefni metin til framhaldsskólaeininga? Ertu 25 ára eða eldri? Hefurðu starfað í 3 ár eða lengur með fötluðu fólki, öldruðum eða sjúkum? Hefurðu lokið a.m.k. 240 stundum í starfstengdu námi (til dæmis grunn- og framhaldsnámi fyrir stuðningsfulltrúa sem starfa með fötluðum, öldruðum eða sjúkum)?
Ef þú svarar öllum þessum spurningum játandi er upplagt fyrir þig að skrá þig í raunfærnimat félagsliða hjá Starfsmennt.
Hvað er raunfærnimat?
Raunfærnimat félagsliða er unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Borgarholtsskóla. Raunfærnimat er ferli þar sem færni einstaklingsins er metin á móti hæfniviðmiðum námskrár (áfangar). Þegar einstaklingur skráir sig í raunfærnimat þarf hann að ganga í gegnum ákveðið ferli sem lýkur með matssamtali við fagkennara áfangans sem á að raunfærnimeta. Ef einstaklingurinn stenst raunfærnimatið fær hann einingarnar í viðkomandi áfanga metnar og þarf því ekki að taka þann áfanga í skólanum og eyða dýrmætum tíma í að nema það sem hann þegar veit og kann.
Ef þú hefur áhuga og langar að afla þér frekari upplýsinga hafðu þá samband við Fræðslusetrið Starfsmennt í síma 550 - 0060 eða í gegnum netfangið smennt@smennt.is