18. október 2013
Búið að opna fyrir skráningu á fræðslu trúnaðarmanna
Grunnnám trúnaðarmanna sem SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hafa haldið sameiginlega til margra ára hefur verið endurskoðað og er búið að setja upp þrjú námskeið veturinn 2013-2014.
Áfram er um að ræða þriggja daga námskeið þar sem megináherslan er á starf og stefnu stéttarfélagsins, hlutverk trúnaðarmanna og verkfærin hugarkort og lausnarleitarhringinn, kjarasamninga félaganna og túlkun helstu atriða, tjáskipti, mótun sjálfsmyndar og áhrif hennar á hegðun. Á námskeiðinu er lögð áhersla á þjálfun í að vinna með verkfæri og kjarasamning.
Boðið er upp á mismunandi uppsetningu til að sem flestir sjái sér fært að sækja námskeiðið, fyrsta námskeiðið skiptist í 1+2 daga, annað er kennt 3 daga samfellt og þriðja er fyrir hádegi 2 daga vikunnar og nær því yfir þrjar vikur:
- Fyrsta námskeið (sjá dagskrá hér) - 21. nóv., 2. og 3. des. 2013 kl. 9-16 - SKRÁNING
- Annað námskeið - 21., 22. og 23. jan. 2014 kl. 9-16 - SKRÁNING
- Þriðja námskeið - 29., 31. jan., 5., 7., 12. og 14. feb. 2014 kl. 9-12:15 - SKRÁNING
Þá er einnig boðið upp á fræðslumorgunn á undan fundi trúnaðarmanna þann 26. nóv. kl. 10-12:15 en þar verða tekin fyrir spurningar og svör sem tengjast kjarasamningi - Skráning og nánari upplýsingar hér.