Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. október 2013

Ályktun stjórnar BSRB um fjárlagafrumvarp

Í frétt á vef BSRB er sagt frá því að á fundi stjórnar BSRB síðastliðinn föstudag var m.a. fjallað um stöðu mála í komandi kjarasamningsviðræðum, stöðuna í viðræðum um lífeyrismál og fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Þá sendi stjórnin frá sér ályktun þar sem meðal annars segir: „Tekjuskattslækkun á 2. skattþrepi mun aðeins koma þeim tekjuhærri til góða og í reynd hækka hlutfallslega skattbyrði þeirra sem lægst hafa launin.“

Hér má sjá ályktunina í heild:

Ályktun stjórnar BSRB um fjárlagafrumvarpið

Stjórn BSRB lýsir vonbrigðum sínum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Fyrstu verk nýrrar stjórnar voru að hafna milljarða tekjum frá útgerðinni og ferðaþjónustunni. Þess í stað á að rétta hallann með niðurskurði á opinberri þjónustu, afnámi vaxta á láni Seðlabankans og fyrirframgreiðslum úr þrotabúum föllnu bankanna.

Ríkisstjórnin hefur einnig valið að framlengja ekki skatta á þá efnamestu, tekjustofna sem meira að segja Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur í nýlegri skýrslu sinni sagt að séu nauðsynlegir til að rétta af halla á ríkisrekstri og stuðla að frekari jöfnuði fólks. Þá mun boðuð tekjuskattslækkun á 2. skattþrepi aðeins koma þeim tekjuhærri til góða og í reynd hækka hlutfallslega skattbyrði þeirra sem lægst hafa launin.

Með því að hverfa frá lækkun skatta á auðmenn og útgerðir væri hægt að rétta heilbrigðiskerfið við og takast á við einhver þeirra fjölmörgu verkefna sem þegar þarfnast úrlausna. Slíkar aðgerðir gætu dregið úr þeim aðhaldskröfum sem settar eru fram í nýju fjárlagafrumvarpi og um leið tryggt heilbrigðis- og almannaþjónustunni það fjármagn sem nauðsynlegt er til að velferð landsmanna geti aftur orðið með því besta sem gerist.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)