Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

31. október 2013

Lífeyrisgáttin - ný upplýsingaleið lífeyrissjóðanna

Logo LSRLífeyrissjóðir landsins opnuðu í gær aðgang að Lífeyrisgáttinni, nýrri leið sjóðfélaga til að fá á einum stað upplýsingar um áunnin lífeyrisréttindi sín í samtryggingarsjóðum.

Í tilefni af opnun Lífeyrisgáttarinnar verða lífeyrissjóðir landsins með opið hús þriðjudaginn, 5. nóvember 2013. Þar verður hægt að fá upplýsingar um lífeyrisréttindi og gefst sjóðfélögum kost á að kynna sér Lífeyrisgáttina betur og ræða um lífeyrisréttindi sín. Þennan dag mun LSR hafa opið til kl. 19 og bjóðum við sjóðfélaga velkomna í hús.

Opinn kynningafundur um lífeyrisréttindi í LSR og LH verður kl. 17:30.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)