Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

11. nóvember 2013

Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar birtar

Hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar voru birtar í dag. Þær voru unnar af fjórum þingmönnum, þeim Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Vigdísi Hauksdóttur, Unni Brá Konráðsdóttur og Ásmundi Einari Daðasyni sem jafnframt var formaður hópsins.

Tillögurnar voru kynntar á þingflokksfundum í dag og reikna má með því að einhverjar þeirra muni skila sér inn í breytingatillögur fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarpið. Önnur umræða um fjárlagafrumvarpið á að fara fram 3. desember. Á vef Forsætisráðuneytis má finna tillögurnar í heild sinni.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)