25. nóvember 2013
Desemberuppbót 2013
Starfsmaður sem er í starfi fyrstu viku nóvembermánaðar fær greidda desemberuppbót miðað við fullt starf tímabilið frá 1. janúar til 31. október. Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins og skal hún greidd út eigi síðar en 15. desember 2013. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall, sjá nánar í viðkomandi kjarasamningi. Tímavinnufólk á rétt á desemberuppbót. Á desemberuppbót reiknast ekki orlofsfé.
Tímavinnufólk þarf að hafa skilað 1504 dagvinnustundum á tímabilinu 1. janúar til 31. október til að fá 100% desemberuppbót. Tímavinnustarfsmaður sem vinnur færri klukkustundir á tímabilinu fær greitt hlutfallslega samkvæmt því.
FÉLAGSMENN SFR STÉTTARFÉLAGS
Ríki og sjálfseignarstofnanir 52.100 kr.
Matís ohf 52.100 kr.
RARIK ohf 52.100 kr.
Fríhöfnin ehf 59.200 kr.
Isavia ohf 52.500 kr.
Reykjavíkurborg 58.000 kr.
Sveitarfélög 80.700 kr.
EFTIRLAUNAFÓLK
Eftirlaunafólk sem eru aðilar að B-deild LSR fá greidda persónuuppbót í desember frá viðkomandi lífeyrissjóði í réttu hlutfalli við greidd eftirlaun.