Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

27. nóvember 2013

Aðventukvöld 5. desember

Saga Amal er ævintýraleg - flóttakona sem komst á Alþingi.Stúlka með magaAðventukvöld SFR og St.Rv. verður haldið fimmtudaginn 5. desember, kl. 20:00 að Grettisgötu 89, 1. hæð.

Boðið verður upp á sannkallaða aðventustemmingu með heitu súkkulaði og smákökum undir ljúfum upplestri úr nokkrum nýjum jólabókum.

Þeir rithöfundar sem munu lesa upp eru Kristjana Guðbrandsdóttur en hún mun lesa upp úr bókinni Von sem er byggð á sögu Amal Tamini, Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir mun lesa upp úr bók sinni Stúlka með maga og Ragnar Jónasson les upp úr bók sinni Andköf.

Mætum og tökum smá forskot á aðventuna.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)