9. desember 2013
Jólaball SFR og St.Rv. - miðasala hafin
Jólaball SFR stéttarfélags og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar verður haldið miðvikudaginn 18. desember kl. 17:00 Gullhömrum, Þjóðhildarstíg 2, Reykjavík.
Boðið verður upp á glæsilegar veitingar, dansað í kringum jólatréð og auðvitað koma jólasveinar í heimsókn með glaðning handa börnunum. Miðar verða seldir á skrifstofu félaganna, Grettisgötu 89 frá 2. - 18. desember, opið frá kl. 09:00-16:00.
Miðaverð 700 kr.