Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

12. desember 2013

Þrautseigir göngugarpar SFR

Lífeyrisdeild SFR er líklega einn virkasti hópur lífeyrisþega sem fyrirfinnst. Auk þess að standa reglulega fyrir uppákomum svo sem jólakaffi og Þorrablói, þá hittist hluti hópsins vikulega og gengur saman. Gangan er á hverjum miðvikudagsmorgni kl. 10:30. Ýmist í gengið í Vesturbæ, Fossvoginn, um svæði Árbæjarsafns eða í Laugardalnum. Það var einmitt þar sem fulltrúar skrifstofunnar hittu hópinn og færðu honum heitt súkkulaði og jólasmákökur sem hópurinn gæddi sér á í húsnæði Kaffi Flóru.

Þangað kíktu einnig í heimsókn starfsfólk borgarinnar sem sér um fjölskyldu- og húsdýragarðinn ásamt Sólu, dóttur Grýlu sem kom beint frá því að skemmta leikskólabörnum í garðinum. Þetta var að vonum glaður hópur enda lék veðrið við hvern sinn fingur þennan dag, blankalogn og hvít snjóbreiða yfir öllu. Nánari upplýsingar um gönguhópinn má finna hér, en allir félagar í lífeyrisdeild SFR eru velkomnir í gönguna.

IMG_5099 (Copy)

IMG_5091 (Copy)

IMG_5083 (Copy)

IMG_5079 (Copy)

IMG_5093 (Copy)

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)