Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

6. janúar 2014

Námskeið í stjórnsýslurétti

Í tíunda skiptið bjóða forsætisráðuneytið og Reykjavíkurborg í samvinnu við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála upp á sex vikna námskeið um stjórnsýslulögin og stjórnsýslurétt fyrir þá starfsmenn ríkisins (ráðuneyta og ríkisstofnana) og starfsmenn sveitarfélaga, sem koma að meðferð mála og undirbúningi ákvarðana í stjórnsýslunni. Þótt námskeiðið sé fyrst og fremst ætlað ólöglærðum getur það einnig nýst lögfræðingum til upprifjunar. Nemendur munu hlýða á fyrirlestra, taka þátt í umræðum og lesa kennslurit. Eftir atvikum verður varpað upp stuttum raunhæfum verkefnum sem farið verður sameiginlega yfir í tímum.

Kennarar: Umsjónarmaður og aðalkennari er Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands. Aðrir kennarar eru Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, Hafsteinn Dan Kristjánsson, aðstoðarmaður umboðsmanns Alþingis, Berglind Bára Sigurjónsdóttir, skrifstofustjóri hjá umboðsmanni Alþingis, Særún María Gunnarsdóttir, lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis, Vilhelmína Ósk Ólafsdóttir lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis og Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands.

Tími- kennsluefni- verð: Kennt verður í alls 54 kennslustundir, í 12 skipti tvisvar í viku að jafnaði á mánudögum og miðvikudögum milli kl. 14:00- 17:00. Í þriðju viku námskeiðsins er kennt fimmtudag og föstudag, 13. og 14. febrúar kl. 14-17. Námskeiðið hefst 27. janúar og lýkur 5. mars.Þátttökugjald er kr. 54.000, -. Innifalin eru ljósrituð kennslugögn, en nemendur afli sjálfir fræði- og kennslurita, sem líklega eru flest til hjá viðkomandi stofnun eða fást keypt í Bóksölu stúdenta (sjá lista hér að neðan).

Forsætisráðuneytið og Reykjavíkurborg í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og Félag forstöðumanna ríkisstofnana býður upp á sex vikna námskeið í stjórnsýslurétti fyrir starfsmenn ráðuneyta, ríkisstofnana og sveitarfélaga 27. janúar til 5. mars 2014  (einnig í boði í fjarnámi)

  • Þátttökugjald er 54.000.-  
  • Skráning: HÉR 
  • Frekari upplýsingar:  HÉR
  • Einnig hægt að skrá sig gegnum heimasíðu Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála: www.stjornsyslustofnun.hi.is 
  • Fjöldi er takmarkaður við 40 manns.  Námskeiðið er haldið í húsnæði Endurmenntunar HÍ við Dunhaga.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)