8. janúar 2014
Fjölbreytt úrval námskeiða hjá Starfsmennt
Nýtt ár, nýtt upphaf. Nú þegar daginn fer aftur að lengja er tilvalið að horfa fram á við, setja sér ný markmið og finna ný viðfangsefni. Á vef Starfsmenntar hefur verið opnað fyrir öll námskeið vorannar og er úrvalið fjölbreytt að vanda. Þverfagleg námskeið, starfstengt nám, farandfyrirlestrar og tölvunámskeið eru meðal þess sem boðið er uppá. Að venju er allt nám félagsmönnum SFR að kostnaðarlausu.
Hér fyrir neðan má sjá hluta þeirra námskeiða sem boðið er upp á en allar nánari upplýsingar um bæði nám og þjónustu er á heimasíðunni, www.smennt.is.
- Launaskólinn I og II - Námskeiðin hefjast í janúar og febrúar í Reykjavík og er kennt í 2-3 heila daga hjá EHí. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig.
- Starfsnám stuðningsfulltrúa - Á þessari önn verður aðeins boðið upp á grunnnám sem hefst 27. janúar. Námið er haldið í samstarfi við Framvegis og rennur umsóknarfrestur er til 10. janúar. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig.
- Enska fyrir atvinnulífið - Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig til þátttöku.
- Markaðssetning vöru og þjónustu - Kennsla verður 12. feb.-19. mars kl. 16:30-18:00 á Akureyri en einnig er fjarkennt heim í hérað eftir þátttöku. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig til þátttöku.
- Verkefnastjórnun-hagnýtt og hnitmiðað - Námskeiðið hefst 11. febrúar hjá Endurmenntun HÍ og verður kennt á þriðjudögum kl. 13-16 (6x). Námskeiðið verður einnig fjarkennt til Ísafjarðar, Akureyrar og Selfoss ef næg þátttaka fæst. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig til þátttöku.
- Fjarkennt tölvunám með persónulegri aðstoð - Fyrstu námskeiðin, Grunnnámskeið og Outlook hefjast 4. febrúar. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig til þátttöku.