13. janúar 2014
Starfslokanámskeið BSRB
Fræðslufundur BSRB í tengslum við starfslok
Fundurinn verður mánudaginn 3. febrúar 2014 kl. 15:15 í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð.
Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum aðildarfélaga innan BSRB sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum.
Skráning hefst 15. janúar 2014 á netfangið: johanna@bsrb.is og í síma 525 8306.
Við skráningu þarf að gefa upp kennitölu og nafn aðildarfélags.
Dagskrá:
- 15:15: Ágústa H. Gísladóttir forstöðumaður réttindamála hjá LSR - Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins – Lífeyrisréttindi hjá LSR
- 15:45: Þórdís Ingvadóttir sérfræðingur hjá LSS – Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga – Lífeyrismál við starfslok
- 16:15: Kynning á störfum sjálfboðaliða Rauða krossins- Bergdís Kristjánsdóttir
- 16:30: Kaffi
- 16:45: Ásta Arnardóttir frá Tryggingastofnun – Lífeyrisþegar og almannatryggingar
- 17:15: Kynning á starfi U3A Reykjavík (The University of the Third Age) – Ásdís Skúladóttir leikstjóri
- 17:30: Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur – Ár fullþroskans
Einnig verður hægt að fylgjast með á vefnum. Hentar vel þeim sem búa fyrir utan höfuðborgarsvæðið.
Til að fylgjast með námskeiðinu á vefnum þarf að fara á slóðina straumur.bsrb.is. Nota þarf aðgangsorðið bsrb og lykilorðið er sömuleiðis bsrb. Þegar inn á síðuna er komið þarf að velja valmöguleikan "live streaming" vinstra megin á síðunni. Það er þó takmarkaður fjöldi sem kemst í gegn að sjálfsögðu.