27. janúar 2014
Það dettur engum heilvita manni í hug ...
Í kjölfar niðurstaðna atkvæðagreiðslu þar sem helmingur félagsmanna felldi samninga ASÍ og SA hafa augun beinst í ríkara mæli að áformum ríkisins í yfirstandandi kjarasamningsviðræðum. Samninganefnd ríkisins hafði þegar lagt fram tilboð sem fól í svipaðar hækkanir og samningur ASÍ og SA, en SFR hafnaði því eins og kunnugt er.
Í Morgunblaðinu um helgina er Gunnar Björnsson formaður samninganefndar ríkisins inntur eftir áherslum samninganefndar ríkisins í ljósi nýrrar stöðu, en þar ítrekar hann óbreytta afstöðu ríkisins. Hann segir samninganefnd ríkisins þegar hafa kynnt öllum viðsemjendum sínum sama boð sem byggist á sömu kostnaðaráhrifum og í kjarasamningum á almenna markaðinum, enda segist hann sannfærður um að það sé rétta leiðin til að ná að halda niðri verðbólgunni. Aðspurður segir Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, stöðuna í kjaraviðræðum á almenna markaðnum ekki slá samninganefnd SFR út af laginu. Hann segist líta svo á að það tilboð og sú útfærsla sem ríkið hafi boðað sé út af borðinu. "Það dettur engum heilvita manni í hug að semja út frá því núna þegar búið er að fella það víðast hvar í þjóðfélaginu," segir hann. Megináherslur SFR séu að ná fram leiðréttingu á launamun milli opinbera markaðarins og almenna markaðarins og að samið verði um jafnlaunapotta til að útrýma kynbundnum launamun.