6. febrúar 2014
Laus orlofshús í Vaðnesi og Munaðarnesi um helgina
SFR á og leigir fjölda orlofshúsa sem standa félagsmönnum boða allt árið um kring. Það getur verið notalegt að fara í bústað þó engin sé sólin. Að kúra inni í húsi með góða bók eða fá sér göngu úti í náttúrunni og skella sér svo í pottinn á eftir góðri máltíð. Það hlýtur að teljast til lífsgæða. Um helgina eru enn nokkur hús laus í Vaðnesi og Munaðarnesi. Bókanir fara fram á orlofsvefnum.