17. febrúar 2014
Símenntun og kjaraviðræður á fundi trúnaðarmanna
Á fundi Trúnaðarmannaráðs í síðast liðinni viku var m.a. fjallað ítarlega um símenntunarmöguleika félagsmanna. Eyrún Valsdóttir skólastjóri Félagsmálaskóla alþýðu kynnti skólann og Þórarinn Eyfjörð fjallaði um nýjar hugmyndir félagsins að fræðslu fyrir félagsmenn SFR.
Þá lagði uppstillingarnefnd fram tillögur sínar fyrir fundinn vegna kosningar til stjórnar o.fl. sem fram fer á aðalfundi félagsins 26. mars næstkomandi og Árni Stefán Jónsson formaður SFR gerði grein fyrir stöðu mála í kjarasamningsviðræðum.
Viðræður við ríkið hafa nú staðið yfir í þónokkurn tíma og í vikunni verður haldinn áttundi fundur samningaaðila. Búast má við að þar dragi fljótlega til tíðina, hvort sem það verði á þann veg að viðræður beri árangur eða að þeim verði vísað til sáttasemjara. Þá eru viðræður við Isavía og Fríhöfnina einnig langt komnar og verið er að hefja samningalotu vegna SVF (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu).