28. febrúar 2014
Fulltrúar SFR á fundi NSO
Öflugasta samstarfið sem SFR tekur beinan þátt í á alþjóðavettvangi er samstarfið á vettvangi NSO (Nordiska Statstjänstemännens Organisation).
Nú í vikunni var fundur í Kaupmannahöfn þar sem aðilar NSO hittust. Rætt var um stöðu kjaramála í hverju landi, auk stöðunnar á stjórnmálasviðinu. Einnig var fjallað um ólík lífeyriskerfi landanna.
Auk þess var á fundinum var farið yfir ýmsa þætti er snýr að næstu ráðstefnu NSO sem haldin verður í Tällberg í Svíþjóð. Ráðstefna verður haldin um miðjan júní og þar sem lögð verður áhersla á styrk ríkisins sem forsendu fyrir velferðarsamfélaginu.