3. mars 2014
Hrísey og Bolungarvík í maí
Þann 3. mars opnar fyrir bókanir í orlofshús í Hrísey sem verður í dagleigu frá 16. maí til maíloka og Bolungarvík út maímánuð. Þarna gildir reglan fyrstur bókar fyrstur fær og engir punktar verða teknir vegna leigunnar. Hrísey verður á dagleiguverði 16.000 helgin og aukadagur kostar 3.000 kr. Bolungarvík verður á 20.000 kr. helgin og aukadagur kostar 4.000 kr. Á orlofsvefnum er nú einnig í boði gjafabréf hjá Icelandair og Flugfélagi Íslands. Allt að 7 miðar á mann.