12. mars 2014
Samið við Reykjavíkurborg
Í gær 11. mars var undirritað samkomulag um breytingu og framlengingu á kjarasamningi SFR við Reykjavíkurborg. Samningurinn felur í sér að laun hækka a.m.k. um 2,8% en að lágmarki um 8.000 kr. Laun undir 241 þús. hækka um 9.750 kr. Verulega var bætt í orlofs- og desemberuppbót en þær hækka samtals um 32.300 kr. Jafnframt kemur eingreiðsla upp á 14.600 krónur.
Helstu atriði samningsins eru:
- Samningurinn gildir frá 1. febrúar til 30. apríl 2015
- Eingreiðsla kr. 14.600 miðað við fullt starf
- Launataxtar upp að kr. 241.000 hækka um kr. 9.750.- sem er rúmlega 4% hækkun.
- Launataxtar frá 241.000 kr. upp að 285.000 kr. hækka um kr. 8.000.- sem er um 2,9-3,3% hækkun.
- Almenn launahækkun fyrir laun 285 þúsund og hærri er 2,8%
- Desemberuppbót hækkar um kr. 21.500 og verður fyrir árið 2014 kr. 79.500
- Orlofsuppbót hækkar um kr. 10.800 og verður fyrir árið 2014 kr. 39.500 .-
- Framlag í starfsmenntasjóð hækkar um 0,1%
- Endurskoðun á starfsmati
Jafnframt var gengið frá viðræðuáætlun um eftirfarandi atriði:
- Endurskoðun stafsmatskerfisins verði lokið fyrir 1. nóvember.
- Mat á viðbótarlaunakerfi (eða núverandi hæfnismatskerfi) skal liggja fyrir í lok september 2014.
- Ný launatafla og tengingar við starfsmat- útfærsla verður kynnt fyrir lok september 2014.
- Viðræður um launaliði nýs samnings skulu hefjast í febrúar 2015.
Samningurinn verður kynntur félagsmönnum á mán. 17. mars kl. 16:30, en hann nær til þeirra 200 félagsmanna SFR sem starfa að málefnum fatlaðra. Kynningarfundur verður auglýstur nánar síðar.