Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

27. mars 2014

Ný stjórn kosin á aðalfundi SFR

Vedis-og-arniÁ fjölmennum aðalfundi SFR í gær var kosin ný stjórn félagsins. Árni Stefán Jónsson var sjálfkjörinn sem formaður til næstu þriggja ára samkvæmt nýjum lögum félagsins. Auk hans sitja áfram þau Bryndís Theódórsdóttir frá Vinnumálastofnun, Hildur Kristín Ásmundsdóttir frá Isavia, Jóhanna Sóley Gunnarsdóttir frá Landspítala, Jóhanna Vilhjálmsdóttir frá Fiskistofu, Salóme Berglind Guðmundsdóttir frá Fangelsismálastofnun og Sigurður H. Helgason frá Tilraunastöð háskólans að Keldum.

Auk þeirra voru kosin ný inn í stjórn þau Viðar Ernir Axelsson frá Landhelgisgæslu Íslands, Gunnar Garðarsson frá Vegagerðinni, Sigurlaug Hrefna Sverrisdóttir frá Háskóla Íslands og Þórey Einarsdóttir frá Sjálfsbjargarheimilinu. Stjórnin mun skipta með sér verkum á sínum fyrsta fundi, og þá kemur m.a. í ljós hver mun gegna varaformennsku í félaginu.

Úr fyrri stjórn létu þrjú af störfum vegna útskiptareglna félagsins en það voru þau Olga Gunnarsdóttir, Ólafur Hallgrímsson og Védís Guðjónsdóttir varaformaður. En auk þeirra lét Óskar Þór Vilhjálmsson af störfum vegna anna á öðrum vettvangi. SFR þakkar þeim öllum fyrir öflugt og gott starf á liðnum árum og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.

ur-stjorn

Þau Védís Guðjónsdóttir, varaformaður, Ólafur Hallgrímsson og Olga Gunnarsdóttir ritari véku úr stjórn vegna útskiptireglnu félagsins. 

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)