Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

27. mars 2014

Trúnaðarmenn ársins eru tveir

trunaðarmenn-ársinsVenja hefur skapast á aðalfundi félagsins að kynna þar trúnaðarmann ársins. Á fundinum í gær brá hins vegar svo við að tveir trúnaðarmenn voru valdir. Þetta eru þær Ingibjörg Óskarsdóttir og Ína Jónasdóttir. Báðar hafa þær gegnt trúnaðarstörfum fyrir félagið um árabil, setið í stjórn og verið varaformenn. Formaður félagsins Árni Stefán Jónsson sagði af þessu tilefni að stjórn félagsins hefði fundist með öllu ómögulegt að velja á milli þessara tveggja kvenna og því hafi verið ákveðið að bregða út af venjunni og heiðra þær báðar. SFR óskar þeim til hamingju og þakkar ötult starf í þágu félagsins hingað til, enda kom það fram í þakkarræðum þeirra beggja að þær væru hvergi nærri hættar afskiptum af félagsstörfum hjá félaginu.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)