28. mars 2014
Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir gegn Isavia
Mikið fjölmenni var á baráttufundi starfsmanna hjá Isavia í Reykjanesbæ í gær. SFR stéttarfélag, FFR og LSS boðuðu til fundarins til þess að kynna fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir. Mikill hugur var í fundarmönnum og eindreginn stuðningur við samninganefndir félaganna.
Eftir fundinn hófst atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðirnar og er þátttaka í henni mjög góð, til dæmis höfðu 97% félagsmanna í einu félaganna greitt atkvæði þegar í gærkvöld. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 9 á mánudagsmorgunn, en talið verður í höfuðstöðvum BSRB.
Fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir sem kosið er um:
Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00, þriðjudaginn 8. apríl 2014, munu allir félagsmenn félaganna hjá Isavia ohf , leggja niður störf.
Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00, miðvikudaginn 23. apríl 2014, munu allir félagsmenn félaganna hjá Isavia ohf , leggja niður störf.
Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00, föstudaginn 25. apríl 2014, munu allir félagsmenn félaganna hjá Isavia ohf , leggja niður störf.
Klukkan. 04:00 þann 30. apríl 2014 hefst allsherjarverkfall allra félagsmanna félaganna hjá Isavia ohf sem mun standa þar til annað verður ákveðið.