Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

31. mars 2014

Verkfallsaðgerðir starfsmanna Isavia samþykktar

isavia-talningTalning atkvæða um verkfallsaðgerðir starfsmanna hjá Isavia hefur farið fram. Niðurstöður úr atkvæðagreiðslunni er á þann veg að 88% sögðu já, nei sögðu 9%. Auðir og ógildir voru 3%. Á kjörskrá voru 424 og af þeim kusu 365, eða 86%. Af þessu er ljóst að gripið verður til verkfallsaðgerða þann 8. apríl næstkomandi, hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma.

 

Verkfallsaðgerðirnar sem samþykktar voru;

Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00,  þriðjudaginn 8. apríl 2014, munu allir félagsmenn SFR, FFR og LSS hjá Isavia ohf , leggja niður störf.

Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00,  miðvikudaginn 23. apríl 2014, munu allir félagsmenn SFR, FFR og LSS hjá Isavia ohf , leggja niður störf.

Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00,  föstudaginn 25. apríl 2014, munu allir félagsmenn SFR, FFR og LSS hjá Isavia ohf , leggja niður störf.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)