10. apríl 2014
Kynningarfundur í dag á Grettisgötu 89 og í „beinni“ útsendingu - kjarasamningur SFR og ríkisins
Nú stendur yfir kynning á kjarasamningi SFR og ríkisins og eru fundir haldnir víða. Almennur kynningarfundur verður fimmtudaginn 10. apríl kl. 16:30 á Grettisgötu 89, 1. hæð,og verður hann sendur út í streymi - hægt að fylgjast með á netinu.
- Til að fylgjast með fundinum á netinu þarf að fara á slóðina straumur.bsrb.is.
- Nota þarf aðgangsorðið bsrb og lykilorðið er sömuleiðis bsrb.
- Þegar inn á síðuna er komið þarf að velja valmöguleikann „live streaming“ vinstra megin á síðunni.
Á meðan á fundinum stendur er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið alma@sfr.is.