11. apríl 2014
Dómur SFR félaga í vil
Í dag féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli félagsmanns SFR gegn ÁTVR, starfsmanninum í vil. Forsaga málsins er sú að starfsmanninum hafði verið sagt upp störfum að undangenginni áminningu vegna staðhæfinga um að hann hefði átt þátt í einelti gagnvart samstarfsmanni.
Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að starfsmanninum hafi ekki verið gefinn fullnægjandi og raunhæft tækifæri til að tjá sig um ávirðingar þær sem á hann voru bornar. Með því var brotið gegn lögbundnum andmælarétti hans sem veitir honum rétt til skaðabóta vegna fjártjóns.
Starfsmanninum voru því dæmdar 2 milljón í bætur, auk vaxta og 900 þúsunda málskostnaðar.