Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

16. apríl 2014

Baráttufundur um verkfallsaðgerðir

023 (Copy)Afar fjölmennur baráttufundur félagsmanna SFR stéttarfélags og Sjúkraliðafélags Íslands sem starfa hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) var haldinn síðdegis í gær. Á fundinum voru kjör og réttindi félagsmanna til umræðu og staðan í kjaraviðræðum félaganna við SFV. Húsfyllir var á Grettisgötunni þar sem fundurinn var haldinn og stóð fólk meðfram göngum út á götu. Mikill hiti var í fundarfólki enda flestir orðnir afar langeygðir eftir kjarabótum fyrir þennan hóp sem telur um fimm hundruð manns. Á fundinum var tekin einróma sameiginleg ákvörðun um að félögin efni til atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun. Enda hafa viðsemjendur ekki sýnt neinn vilja til þess að koma til móts við kröfur félaganna og mikil óánægja er með gang mála.

Félögin hafa verið í samstarfi um kjarasamningsviðræðurnar undanfarið en lögð hefur verið áhersla á að bæta kjör starfsmannanna m.a. með því að ná fram sambærilegu jafnlaunaátaki og ríkisstjórnin stóð fyrir vegna hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum. Starfsfólk á hjúkrunarheimilunum naut ekki góðs af því átaki á sínum tíma og því hefur sú krafa verið sett í forgang í þessum samningum sem fyrsta skref í leiðréttingum launa og kjara. Þá hefur einnig vantað kafla um réttindi og skyldur inn í kjarasamningana við SFV, en Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa alfarið neitað að semja um réttindi og skyldur starfsmanna. Félögin eru einhuga um að slíkur rammi sé nauðsynlegur og forsenda þess að hægt sé að byggja upp gott starfsumhverfi.

Þau fyrirtæki sem tilheyra Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) eru: Ás, Dalbær, Eir, Garðvangur, Grund, Hlévangur, HNLFÍ, Hornbrekka, Hrafnista Reykjavík, Hrafnista Hafnarfirði, Hrafnista  Kópavogi, Hrafnista Reykjanesi, Kumbaravogur, Lundur, Mörk, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilið, Skjól, Skógarbær, Sóltún og Sunnuhlíð/Vigdísarholti.

020 (Copy)018 (Copy)023 (Copy)

012 (Copy)

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)